Tungutækni.is
er upplýsingavefur á vegum Tungutækniseturs
(Icelandic Centre for Language Technology, ICLT). Setrið er
rekið í samstarfi MálvísindastofnunarHáskóla
Íslands, tölvunarfræðideildarHáskólans
í Reykjavík og orðfræðisviðsStofnunar
Árna Magnússonar í
íslenskum
fræðum.
Það
vinnur með
hliðstæðum setrum annars staðar
á
Norðurlöndum og tekur
þátt í samstarfsneti
þeirra, NorDokNet.
Eitt
meginhlutverk þess er að safna
upplýsingum
um allt
sem varðar tungutækni á Íslandi
og birta þær á vefnum, til að
miðla samböndum og greiða fyrir
nýtingu gagna og niðurstaðna á
þessu sviði, bæði innanlands og
í norrænu og
alþjóðlegu samstarfi.