Starfsemi
Tungutækniseturs
Tungutæknisetur hóf starfsemi sína
með
ráðstefnu, Íslensk
tungutækni 2006, sem
haldin var í
Háskólanum í Reykjavík 23.
maí 2006.
Ráðstefnan tókst mjög vel og
sótti hana
á sjötta tug manna.
Veturinn 2006-2007 gengst Tungutæknisetur fyrir
fyrirlestraröð og er
ætlunin að fyrirlestrar verði a.m.k.
mánaðarlega frá desember og fram
á
vor. Fyrsti fyrirlesturinn var haldinn 5. desember.
Þá
talaði Stefán
Briem um
vélrænar þýðingar, og
voru
áheyrendur um 60. Annar fyrirlesturinn var haldinn 3.
janúar. Þá talaði Arnar
Þór Jensson
um talkennsl, Þriðji fyrirlesturinn var haldinn 9.
janúar, í samvinnu við IEEE á
Íslandi. Þar talaði Jón
Guðnason um raddkennsl.
Fjórði fyrirlesturinn var haldinn 6.
febrúar og þá talaði Hrafn
Loftsson
um mörkun. Áheyrendur voru 25-30 í hvert
skipti.
Forsagan
Á næstu síðum er gerð
grein fyrir
tungutækniverkefni
menntamálaráðuneytisins, en
Tungutæknisetur á rót sína
að rekja til
þess.
|