19.6.
2001
Samningur
við HÍ um verkefni í tungutækni
Björn
Bjarnason,
menntamálaráðherra og Páll
Skúlason,
rektor Háskóla Íslands
undirrituðu í
dag samning um
þjónustu Háskóla
Íslands vegna tungutækniverkefna.
Tungutækni (e. language technology) snýst um
undirbúning og smíði ýmiss
konar forrita sem
vinna með tungumál og tengir
því saman málfræði,
upplýsinga- og
tölvutækni og
iðnaðarstarfsemi. Mikilvægur
þáttur í
þessum tengslum er notkun tölvutækni til
að
auðvelda
mönnum að nota tungumálið.
Þar má
nefna talgervla, forrit sem skilja tal,
hugbúnað til símsvörunar,
leiðréttingar á stafsetningu og
málfari,
þýðingarforrit,
tölvuorðabækur af ýmsu tagi og
hjálpartæki handa
fötluðum.
Á vegum
menntamálaráðuneytisins er starfandi
sérstök verkefnisstjórn undir forystu
Ara Arnalds
verkfræðings, sem hefur
umsjón
með framkvæmd áætlunar um
tungutækni.
Verkefnisstjóri er
Rögnvaldur
Ólafsson eðlisfræðingur.
Íslensk
tungutækni er skammt á veg
komin en
ríkisstjórnin telur brýnt að
efla hana og
hefur veitt til þess fé á
fjárlögum.
Háskóli Íslands hefur
ákveðið
að koma á þverfaglegu
framhaldsnámi í tungutækni.
Markmiðið
með
náminu er að
mennta nemendur sem eru hæfir til þess að
vinna að
þróun
tungutækni
fyrir íslenska málsamfélagið,
taka að
sér störf á þessu
sviði í
íslenskum
upplýsingatæknifyrirtækjum og
miðla þekkingu sinni til annarra. Unnið
verður
að
rannsóknum á tungutækni fyrir
íslenska málsamfélagið
með
sérstakri áherslu á lausnir sem
gætu
nýst öðrum fámennum
málsamfélögum.
Náðst hefur samkomulag milli
Háskóla
Íslands og verkefnisstjórnar
menntamálaráðuneytis um
þjónustu og
faglega ráðgjöf vegna tungutækni.
Háskólinn mun á
samningstímanum veita
verkefnisstjórn um tungutækni
þjónustu
á eftirfarandi sviðum:
- Ráðgjöf
varðandi
einstök þróunarverkefni sem
verkefnisstjórnin
hyggst láta vinna svo sem þróun texta-
og
málgrunna, staðla og verklag,
vélrænar
þýðingar og
fleira.
- Ráðgjöf
varðandi erlend
verkefni og erlent samstarf með sérstakri
áherslu
á norræn verkefni og ESB
verkefni.
- Kynna
nám í tungutækni
fyrir fyrirtækjum og stuðla að samstarfi
við þau um kennslu og rannsóknir
á
því sviði.
Verkefni
þessi verða
útfærð nánar og
tímasett í samráði við
verkefnisstjórn í tungutækni.