4.
júlí 2001
Mikill
áhugi á tungutæknifyrirlestri
Guðrún
Magnúsdóttir, forstjóri ESTeam AB,
hélt nýverið fyrirlestur á
vegum íslenskuskorar Háskóla
Íslands og verkefnisstjórnar um
tungutækni. Tæplega eitt hundrað manns
hlýddu á Guðrúnu fjalla um
reynslu sína af kennslu í tungutækni
við Háskólann í Gautaborg og
þróun hugbúnaðar til
sjálfvirkra þýðinga.
Fyrirtæki
Guðrúnar, ESTeam AB, framleiðir
hugbúnað til vélrænna
þýðinga á texta og vann
nýlega útboð á vegum
þýðingadeildar
Evrópusambandsins með nýjum
hugbúnaði, ESTeam Translator, sem
þýðir skjöl milli 12
tungumála Evrópusambandsins.