 |
FRÉTT
|
|
13.11.
2001
Fjöldi
fyrirspurna um stuðning við
tungutækniverkefni
Margar
fyrirspurnir hafa borist
verkefnisstjórn um tungutækni vegna
stuðnings og
styrkja sem menntamálaráðuneytið
auglýsti
til umsóknar 14. nóvember sl. Annars vegar voru
auglýstir styrkir til fyrirtækja sem vilja
þróa og markaðssetja tiltekin
tungutækniverkfæri.
Hámarksupphæð hvers
styrks er fimm milljónir króna eða 50% af
áætluðum
þróunarkostnaði. Hins vegar
er um að ræða stuðning við
hagnýtar
rannsóknir, söfnun upplýsinga,
gerð gagnagrunna
o.fl. sem hafa það að markmiði
að gera
iðnfyrirtækjum, sem vilja hasla sér
völl á
sviði tungutækni, fært að
framleiða
hugbúnað eða önnur
verkfæri fyrir
tungutækni á arðvænlegan
hátt. Sjá
nánar undir hnappnum UPPLÝSINGAR.
Umsóknir skulu berast verkefnisstjórn um
tungutækni
fyrir 15. desember nk. Áhugasamir eru hvattir til að
hafa
samband við Ara Arnalds, formann verkefnisstjórnar,
netfang: ari@tungutaekni.is,
eða
Rögnvald
Ólafsson verkefnisstjóra
tungutækniverkefnisins,
netfang: rol@tungutaekni.is. |
|
|