15.2.
2002
Þróun
raddstýrðs búnaðar í
þágu
fatlaðra
Fyrirtækið
VoiceEra í
Bolungarvík og Öryrkjabandalag
Íslands gerðu
fyrir nokkru
með sér samning um samstarf vegna
þróunar
raddstýrðs búnaðar sem
nýst getur
fötluðum.
Í fréttatilkynningu frá
Öryrkjabandalaginu
kemur m.a. fram að þess má vænta
að innan
skamms komi á markað hér á
landi
hugbúnaður frá VoiceEra sem gerir
fólki kleift
að stjórna tölvum með
röddinni og
íslenskum orðum. VoiceEra hefur tekið
á leigu
tvær íbúðir
Hússjóðs
Öryrkjabandalagsins í Bolungarvík og
hefur
önnur þeirra þegar verið
búin ýmsum
raddstýrðum búnaði.