Fyrirtækið
Friðrik Skúlason ehf.
hlaut styrk
úr síðustu úthlutun
úr
Tæknisjóði RANNÍS
að andvirði 4,5 milljónir króna
til verkefnis sem
nefnist Vélræn
greining setninga í
íslensku.
Markmiðið með verkefninu er að
þróa kerfi sem tekur inn setningu á
íslensku
og skilar upplýsingum um byggingu hennar og eiginleika
einstakra
hluta hennar. Greiningarkerfið nýtir sér
annað
kerfi sem þegar hefur verið
þróað innan
fyrirtækisins; það kerfi tekur inn
einstök orð
og skilar upplýsingum um orðflokk og beygingarmynd.
Kerfið mun því skila
upplýsingum um
íslenskar setningar út frá beygingar-
og
setningafræði.