19.2.
2002
Mat
á umsóknum
á lokastigi
Nú
er unnið að
því að meta þær
ríflega tuttugu
umsóknir sem bárust
menntamálaráðuneytinu um stuðning
við
tungutækniverkefni, í kjölfar
auglýsingar
ráðuneytisins þar um þann 14.
nóvember
sl. Umsóknarfrestur var til 15. desember 2001. Annars vegar
voru
auglýstir styrkir til fyrirtækja sem vilja
þróa og markaðssetja tiltekin
tungutækniverkfæri. Hins vegar er um að
ræða
stuðning við hagnýtar rannsóknir,
söfnun
upplýsinga, gerð gagnagrunna o.fl. sem hafa
það
að markmiði að gera
iðnfyrirtækjum, sem vilja
hasla sér völl á sviði
tungutækni,
fært að framleiða hugbúnað
eða önnur
verkfæri tungutækni á
arðvænlegan
hátt.
Í
matsnefnd um umsóknirnar eiga sæti
þau Ebba
Þóra Hvannberg, dósent í
tölvunarfræði, Helga Waage
tölvunarfræðingur og Jón G.
Friðjónsson, prófessor í
íslensku.
Ráðgert er að tilkynna um
úthlutanir
fljótlega.