22,5. 2003
Norræn
máltölvunarráðstefna
í Odda 30.-31.
maí nk.
NODALIDA,
14. norræna
máltölvunarráðstefnan (14th
Nordic Conference
on Computational Linguistics)
verður haldin í Odda,
Háskóla Íslands, 30.-31.
maí nk. Þar
verða flutt rúmlega 40 erindi um fjölbreytt
efni, s.s.
vélræna
málfræðigreiningu (grammatical
tagging), vélræna setningagreiningu (syntactic
parsing),
talgreiningu (speech recognition), samræðukerfi
(dialogue
systems), málsöfn (corpora),
vélrænar
þýðingar (machine translation),
málfræðileiðréttingaforrit
(grammar
checkers), nafnaþekkjara (name recognition systems) o.fl.
Meðal fyrirlesara eru flestir þekktustu
fræðimenn
Norðurlanda á þessu sviði.
Ráðstefnan
er opin
öllum sem hafa áhuga á
máltölvun og
tungutækni. Skráning fer fram með
tölvupósti á netfangið nodalida03@hugvis.hi.is.
Sjá
dagskrá og
fleiri upplýsingar hér.
|