22.7. 2003
Talgervill
les
nýjustu fréttir af mbl.is
Stöðugt
fleiri nýta sér
fréttasíma Morgunblaðsins og Hex sem
hleypt
var
af stokkunum
í vor. Fréttasíminn hefur
nú fengið
nýtt númer, 904 1100, og þar er
hægt að
hlusta á talgervil lesa nýjustu
fréttir af
fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is.
Einnig er hægt að hlusta á
ýmsar aðrar
hagnýtar upplýsingar s.s.
íþróttafréttir,
fréttir af
viðskiptum og flugsamgöngum.
Fréttasíminn
er samstarfsverkefni
Morgunblaðsins og
Hex hugbúnaðar, sem vinnur m.a. að
þróun
lausna á sviði tungutækni og
gervigreindar.
Tungutæknikerfi Hex sér um lesturinn og geta
notendur
hlustað á yfirlit frétta og
fengið fréttir
lesnar í fullri lengd, ef þess er
óskað.
Upplýsingarnar eru sóttar um leið og
hringt er inn og
því tryggt að alltaf er um
nýjustu
fréttir að ræða.
|