Tæplega
3000 manns, eða ríflega 1%
þjóðarinnar, buðu sig fram til
þátttöku í verkefninu Hjali
í sumar. Safnað var
hljóðdæmum frá
rúmlega 2000 manns en það var
sá fjöldi sem þurfti til verksins.
Þátttakendur, sem voru á aldrinum 14-83
ára, voru beðnir að lesa setningar og
setningabrot sem gáfu sem flest
hljóðmynstur íslenskrar tungu.
Hljóðdæmin verða
síðan notuð við
þjálfun talgreinis sem skilur íslensku
og nýtist við gerð sjálfvirkrar
símaþjónustu af ýmsum toga.
Ráðgert er að
fjölþætt þjónusta sem
byggist á talgreininum verði í
boði frá og með nóvember nk.
Aðstandendur
Hjals þakka hinum fjölmörgu
sjálfboðaliðum fyrir
þátttökuna en dregin voru út
nöfn tíu heppinna þátttakenda
sem hlutu að launum vandaða GSM-síma.
Hjal, sem er
styrkt af Tungutæknisjóði
menntamálaráðuneytisins, er unnið
í samstarfi Símans, Nýherja,
Háskóla Íslands, Grunns gagnalausna og
Hex hugbúnaðar.