|
19.12.2003
Styrkur
til norræns
rannsóknaháskóla í
tungutækni
Norræna
rannsóknaráðið, NorFA, hefur
veitt styrk til stofnunar samnorræns
rannsóknaháskóla í
tungutækni. Háskóli Íslands
sótti um styrkinn í samvinnu við fleiri
norræna háskóla og var
umsóknarferlið langt. Forumsókn um
tungutækniháskólann var ein af
tíu umsóknum, sem valdar voru úr
stórum hópi, er hlutu
undirbúningsstyrk til frekari vinnslu á
síðasta ári. Endanlegri umsókn
var skilað í júní sl. og
í byrjun desember var svo tilkynnt um styrkinn.
Tungutækniskólinn er í hópi
fimm rannsóknaháskóla sem
komið verður á um næstu
áramót.
Styrkveitingin,
sem er til fimm ára,
þýðir að nemendur í
tungutækni við Háskóla
Íslands geta tekið námskeið
við ýmsa háskóla á
Norðurlöndum og fá styrki til ferða
og uppihalds. Einnig gefst kostur á að fá
gistikennara hingað til lands.
Sjá
frétt NorFA um
styrkveitingar.
|