13.05.2004
Ráðstefna
um tungutækni og kennslu
í þýðingum
Stofnun
Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum
tungumálum stendur fyrir ráðstefnu um
tungutækni og kennslu í
þýðingum dagana 13. og 14. maí
nk. Ráðstefnan er hluti af starfsemi
norræns nets um tungutækni og kennslu í
norrænum tungumálum sem öðru
máli og erlendu tungumáli. Netið er
styrkt af NorFA, norrænu
rannsóknaakademíunni, og er stýrt af
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur.
Á
ráðstefnuninni sem haldin
verður í Odda, Háskóla
Íslands, fjalla helstu fræðimenn
Norðurlanda á sviði tungutækni og
þýðinga um fagið frá
ýmsum sjónarhornum. Gefið verður
yfirlit yfir vélrænar
þýðingar, fjallað um
tungutækni og þýðingar
í samhengi við tölvustudda
tungumálakennslu, möguleikar veraldarvefsins
verða skoðaðir í ljósi
tungumálakennslu og þýðinga auk
þess sem fjallað verður um
þjálfun sérfræðinga
í tungumálum til
þýðinga fyrir
alþjóðastofnanir og um
tungumálaumhverfi þeirra sem skrifa á
tungumálum öðrum en
móðurmálinu.
Dagskrá
og nánari upplýsingar er
hægt að nálgast á
vefsíðu Stofnunar
Vigdísar Finnbogadóttur. |