17.11.2004
HEX
vekur
athygli fyrir nýsköpun
[frétt af Ruv.is]
Tæknifyrirtækið
HEX,
sem þróað hefur
aðferðir til að koma
hljóðum, lifandi myndum, tali og texta úr
farsímum á netið eða af netinu
í farsíma, er komið á lista
200 athyglisverðustu
nýsköpunarfyrirtækja heims í
bandarísku tímariti um fjárfestingar
í hátækni.
Tímaritið
Red
Herring í
Kaliforníu sérhæfir sig í
umfjöllun um fjárfestingar í
tæknifyrirtækjum og velur árlega
hundrað athyglisverðustu
nýsköpunarfyrirtæki heims og
nú í vikunni voru undanúrslit
200
fyrirtækja tilkynnt,
en endanlegur listi hundrað
fyrirtækja verður kynntur í desember. HEX
er eina íslenska fyrirtækið á
listanum, en Oz var þar líka fyrir nokkrum
árum.
HEX
hefur áður verið í
fréttum vegna talandi tölvukerfa sem taka einnig
við munnlegum fyrirskipunum. Þannig er hægt
að gefa fyrirskipanir um þjónustu,
á mannamáli, senda SMS eða panta efni af
netinu. Lausnirnar eru aðeins í notkun
hér á landi ennþá,
hjá Og Vodafone, en stefnt er á erlenda
markaði og á tilnefning á lista Red
Herring að hjálpa þar til. Sex starfsmenn
vinna hjá HEX.
|