|
29.11.2004
NODALIDA,
15. norræna
tungutækniráðstefnan,
í
Finnlandi í vor
Norrænar
ráðstefnur um tungutækni eru að
jafnaði haldnar annað hvert ár.
Ráðstefnurnar ganga undir nafninu NODALIDA, sem er
stytting fyrir Nordiske datalingvistikdager,
en á ensku nefnast
þær Nordic Conference of Computational
Linguistics.
Síðasta ráðstefna var haldin
í Reykjavík vorið 2003, og sú
næsta verður haldin í Joensuu í
Finnlandi dagana 20.-21. maí 2005.
Vefsíða ráðstefnunnar, http://phon.joensuu.fi/nodalida2005/,
hefur
nú verið opnuð.
Þeir sem hafa áhuga á að flytja
fyrirlestur á ráðstefnunni
þurfa að senda inn útdrátt
í síðasta lagi 31.
janúar, en
skráningarfrestur fyrir alla
þátttakendur er til 31.
mars.
Íslendingar hafa ekki verið áberandi
á þessum ráðstefnum
hingað til, og enginn Íslendingur hefur
talað á undanförnum
ráðstefnum. Nauðsynlegt er að
breyta
þessu og sýna að eitthvað
sé farið að gerast í
íslenskri tungutækni.
|