1.12.2004
Vel
heppnuð
tungutækniráðstefna
Verkefnisstjórn
um tungutækni gekkst í gær fyrir ráðstefnu
í Salnum
í Kópavogi í tilefni af
því að
tungutækniverkefni
menntamálaráðuneytisins
lýkur um áramótin. Tilgangur
ráðstefnunnar var að kynna afrakstur
verkefnisins, og
voru sjö verkefni kynnt í sex
erindum, auk þess sem
formaður verkefnisstjórnar
gaf yfirlit yfir verkefnið og
ráðuneytisstjóri
menntamálaráðuneytisins flutti
ávarp
menntamálaráðherra. Hátt
í 70 manns
sóttu ráðstefnuna sem tókst
mjög vel.
Við upphaf tungutækniverkefnisins fyrir
þremur
árum hélt verkefnisstjórnin einnig
ráðstefnu um tungutækni í
Salnum, og er
mjög ánægjulegt að sjá
hversu mikið
hefur áunnist síðan
þá. Fyrstu skrefin
í íslenskri tungutækni hafa
verið stigin og
nú skiptir miklu máli að haldið
verði
áfram og byggt á þeim grunni sem
lagður hefur
verið með tungutækniverkefninu.
Kynningar
áðurnefndra
verkefna hafa verið gefnar út í bæklingi,
sem
einnig hefur að geyma ávarp
menntamálaráðherra
og yfirlit
Rögnvaldar
Ólafssonar verkefnisstjóra um verkefnið.
Bæklinginn má lesa hér
í heild, en einstakar greinar er einnig að finna
undir Greinar
um tungutækni.
|