 |
FRÉTT
|
7.1.2005
Styrkir
til rannsóknadvalar við
Háskólann í Bergen
Evrópusambandið býður fram styrki
til rannsóknadvalar við Multilingua, sem er "Marie
Curie Early Stage Research Training" setur við
Háskólann í Bergen. Styrkirnir eru
boðnir í löndum
Evrópusambandsins og Evrópska
efnahagssvæðisins og eru ætlaðir
ungum vísindamönnum sem ekki hafa lokið
doktorsprófi. Þeim gefst kostur á
þverfaglegri rannsóknaþjálfun í
tungutækni, einkum á
sviði fjöltyngis (hugbúnaðar,
verkfæra og auðlinda). Sjá
nánar á vef
Multilingua. |
|
|