 |
FRÉTT
|
12.2.2005
Málstofa
um tungutækni og varðveislu tungumála
Dagana
13.-15. apríl 2005 stendur Stofnun Vigdísar
Finnbogadóttur í
erlendum tungumálum fyrir veglegri
alþjóðlegri ráðstefnu
í tilefni af
75 ára afmæli Vigdísar hinn 15.
apríl næstkomandi. Yfirskrift
ráðstefnunnar er Samræða
milli ólíkra menningarheima.
Á ráðstefnunni
fjalla fulltrúar ólíkra menningar- og
málsvæða um tungumál, menningu,
tækni, viðskipti, vísindi og
þjóðfélagsmál
frá sjónarhorni mismunandi
fræðasviða.
Einn meginþáttur ráðstefnunnar
er alþjóðleg málstofa um
tungumál í
útrýmingarhættu og notkun
tungutækni við varðveislu gagna um
tungumál og menningu á stafrænu formi.
Yfirskrift málstofunnar er Tungumál
og menningarlegur fjölbreytileiki. Tungutækni og
varðveisla tungumála.
Málstofan er tvískipt og fer fram á
ensku. Fyrri hlutinn fjallar um
tungumál í
útrýmingarhættu og hinn
síðari um notkun tungutækni við
varðveislu gagna um tungumál og menningu
á stafrænu formi. Aðalfyrirlesari
verður prófessor David Crystal. Nánari
upplýsingar um málstofuna er að finna
á http://vigdis.hi.is/sm/?dagskra.
|
|
|