 |
FRÉTT
|
25.2.2005
Samstarf
norrænna upplýsingasetra við
samtök iðnaðarins
NorDokNet,
samstarfsnet norrænna upplýsingasetra í
tungutækni, og samtök iðnaðarins
á Norðurlöndum hafa fengið
forverkefnisstyrk frá Norrænu
nýsköpunarmiðstöðinni
(Nordisk
innovationscenter) og NordForsk
til að kanna möguleika á samstarfi um
kynningu á tungutækni og þeim
tækifærum sem í henni felast fyrir
fyrirtæki. 14. mars verður haldinn fundur
í Kaupmannahöfn þar sem þessi
mál verða rædd og
ákveðið hvort sótt verður
um framhaldsstyrk. Á þennan fund fara
fulltrúar frá Íslensku
upplýsingasetri í tungutækni og Samtökum
iðnaðarins.
Opnuð hefur verið vefsíða
á http://www.nltnet.org
til kynningar á þessu samstarfi. |
|
|