 |
FRÉTT

|
24.8.2005
Nýr
íslenskur
talgervill í smíðum
Nú er unnið að
gerð nýs íslensks talgervils. Að
verkefninu
standa Síminn, Hex
og Tungutæknisetur með tilstyrk
menntamálráðuneytisins. Samið var
við ScanSoft
um gerð talgervilsins, en samstarf þessara
aðila
við gerð íslensks talgreins (Hjal)
tókst mjög vel. Björn
Kristinsson,
MA í tungutækni, hefur undanfarna
mánuði
dvalist hjá ScanSoft í Belgíu og
unnið með sérfræðingum
fyrirtækisins að
gerð talgervilsins. Verkinu miðar vel
og er
áætlað að því
ljúki snemma
á næsta ári. |
|
|