 |
FRÉTT

|
24.8.2005
Norrænu
tungutækniáætluninni lokið
Norrænu
tungutækniáætluninni
sem norræna
ráðherranefndin
ýtti úr vör árið 2000
að frumkvæði Björns Bjarnasonar
þáverandi
menntamálaráðherra er nú
lokið. Áætlunin hefur leitt til
stóraukins norræns samstarfs á
sviði tungutækni, einkum í formi
rannsóknaneta. Meðal þess sem
áætlunin hefur fjármagnað eru
upplýsingasetur í tungutækni
í norrænu ríkjunum fimm, svo og
samstarfsnet setranna, NorDokNet.
Nú er leitað leiða til að halda
því starfi áfram og víkka
það út til fleiri Evrópulanda,
m.a.
Eystrasaltslandanna. |
|
|