 |
FRÉTT

|
11.5.2006
Ráðstefna
um íslenska tungutækni 2006
Tungutæknisetur
gengst fyrir ráðstefnu
um íslenska tungutækni
þriðjudaginn 23. maí nk.
Ráðstefnan verður haldin í
Háskólanum í Reykjavík og
hefst kl. 13:00. Þar munu aðstandendur
Tungutækniseturs kynna helstu verkefni sem þeir
vinna að, og nokkur íslensk fyrirtæki
kynna verkefni sín á sviði
tungutækni. Dagskrá
ráðstefnunnar er hér.
Ráðstefnan er öllum opin og
þátttökugjald er ekkert, en
æskilegt er að tilkynna
þátttöku fyrir 20. maí til
Eiríks Rögnvaldssonar
(eirikur@hi.is,
s.
525-4403). |
|
|