 |
FRÉTT

|
2.12.2006
Norðurevrópsku
tungutæknisamtökin (NEALT)
Norðurevrópsku
tungutæknisamtökin (Northern European Association
for Language Technology, NEALT) voru stofnuð
á fundi í Gautaborg 28. október sl.
Félagssvæði er
Norðurlönd, Eystrasaltslönd og
norðvesturhluti Rússlands. Markmið
samtakanna er að efla rannsóknir og
þróunarstarf á sviði
tungutækni, stuðla að samvinnu og samskiptum
fólks og félaga á þessu
sviði, og kynna tungutækni fyrir almenningi.
Nánari upplýsingar er að finna hér.
Kimmo Koskenniemmi prófessor í Helsinki var
kjörinn fyrsti forseti samtakanna, en Eiríkur
Rögnvaldsson er varaforseti. Aðrir
stjórnarmenn eru Janne Bondi Johannessen, Osló,
Joakim Nivre, Uppsölum/Växjö, Mare Koit,
Tartu, og Inguna Skandina, Riga.
|
|
|