 |
FRÉTT

|
5.1.2007
Tvær
tímabundnar
rannsóknastöður lausar til
umsóknar
Auglýst
er eftir umsóknum um tvær
rannsóknarstöður við Stofnun
Árna
Magnússonar í íslenskum
fræðum, og
verða þær
veittar til eins, tveggja
eða þriggja ára.
Stöðurnar verða tengdar nöfnum
Árna Magnússonar og
Sigurðar Nordals. Gert er ráð fyrir
að stöðuhafi kynni rannsóknir
á
málstofu eða sinni einhverri kennslu skv.
nánara samkomulagi. Laun
verða skv. kjarasamningi
Félags
háskólakennara og
fjármálaráðherra.
Umsækjendur skulu hafa doktorspróf á
fræðasviði stofnunarinnar eða geta
lagt fram verk sem meta megi jafngild doktorsriti. Með
umsóknum skal
senda skýrslu um menntun, fyrri störf og reynslu af
rannsóknum ásamt
afritum prófskírteina, ritaskrá og
eintökum af nýlegum verkum sem
umsækjandi vill láta taka tillit til.
Þá skal fylgja rækileg
áætlun um
þær rannsóknir sem umsækjandi
hyggst stunda á tímabilinu. Forstöðumaður
Stofnunar Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum ræður
í stöðurnar að
fenginni umsögn húsþings.
Umsóknarfrestur er til 5. febrúar 2007.
Umsóknir skulu sendar til forstöðumanns,
Stofnun Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum,
Árnagarði v/Suðurgötu
Reykjavík. Stefnt er að því
að
ráða í störfin ekki
síðar en 1. mars. Öllum umsóknum
verður svarað.
Stofnun
Árna Magnússonar í
íslenskum fræðum
varð til
með lögum sem Alþingi
samþykkti 2. júní 2006. Hlutverk
stofnunarinnar er m.a. að „vinna að
rannsóknum í íslenskum
fræðum og skyldum fræðigreinum,
einkum á sviði
íslenskrar tungu og bókmennta“, sbr.
nánari skilgreiningu í 3.
gr.
laganna. Um
rannsóknarstöður
þær sem hér eru auglýstar er
fjallað í 7.
gr.
laganna.
Upplýsingar um stofnunina er að finna á
vefsetri hennar: www.arnastofnun.is.
Nánari upplýsingar um
stöðurnar veitir forstöðumaður
Vésteinn
Ólason í
síma 525 4011, netfang: vesteinn@hi.is. |
|
|