 |
FRÉTT

|
11.1.2007
Vel
heppnuð fyrirlestraröð
Tungutækniseturs
Nú
hafa verið flutt þrjú erindi í
fyrirlestraröð Tungutækniseturs. Stefán
Briem
eðlisfræðingur reið á
vaðið og talaði um
vélrænar þýðingar 5.
desember. Aðsókn var svo mikil að flytja
þurfti fyrirlestur hans í stærri stofu
en auglýst hafði verið. Alls kom
á sjöunda tug manna að
hlýða á Stefán.
Næstur talaði Arnar
Þór Jensson
doktorsnemi í Japan um talkennsl þann 3.
janúar, og sóttu rúmlega 30 manns
fyrirlestur hans. Þriðji fyrirlesturinn var svo
haldinn í samvinnu við IEEE
á Íslandi
9. janúar. Þá talaði Jón
Guðnason,
nýbakaður doktor frá Imperial College
í London, um raddkensl. Um 30 manns komu að hlusta
á Jón. Fyrirlestur hans vakti talsverða
athygli og var sagt frá honum í Morgunblaðinu
auk þess sem Kastljós
Sjónvarpsins hafði viðtal við
Jón.
Næsti
fyrirlestur Tungutækniseturs verður haldinn
í byrjun febrúar og verður efni hans
auglýst fljótlega. |
|
|