5.2.2007
Rannsóknasjóður
styrkir tungutækniverkefni
Stjórn
Rannsóknasjóðs hefur nú
lokið úthlutun
styrkja fyrir árið
2007. Tvö tungutækniverkefni voru styrkt; Aukin
mörkunarnákvæmni íslensks texta
og Samhengisháð
ritvilluleit. Aðstandendur
beggja verkefnanna eru Eiríkur
Rögnvaldsson, Hrafn Loftsson og Sigrún
Helgadóttir; Hrafn er verkefnisstjóri
í fyrrnefnda verkefninu og Eiríkur í
því síðarnefnda. Tvö
önnur verkefni sem hafa gildi fyrir tungutækni voru
einnig styrkt; Veflægar
samheitatengingar á grundvelli orðasambanda og
samsetninga sem Jón
Hilmar Jónsson og Þórdís
Úlfarsdóttir standa að, og Sagnflokkar og táknun
rökliða sem Jóhannes
Gísli Jónsson og Matthew Whelpton
stjórna.
|