1.4.2007 Vélrænar
aðferðir við margmála leit og
orðabókagerð
Fyrir
tveimur
árum veitti Norræna
ráðherranefndin fé til að gera
tilraunir með margmála leit og
vélrænar aðferðir við
gerð og nýtingu tví- og
margmála íðorðasafna og
orðabóka. Þessar tilraunir hafa
verið gerðar innan norræna
samstarfsverkefnisins Nordisk
netordbog.
Fimmtudaginn
26. apríl verður haldinn vinnufundur í
Kaupmannahöfn til að ræða
niðurstöður þessara tilrauna og
framhald þeirra. Þátttakendur
í vinnufundinum verða bæði
aðstandendur tilraunanna og aðrir sem hafa
áhuga á efninu. Dagskrá fundarins og
nánari upplýsingar er að finna hér.
Þátttaka (þ.m.t.
hádegisverður) er ókeypis, en
nauðsynlegt er að skrá sig hjá
Lina Henriksen (lina@cst.dk) í
síðasta
lagi 20. apríl.