3.3.2008
Málþing
um
tungutækni og
hugbúnaðarþýðingar 7.
mars
Föstudaginn
7. mars verður málþingið
"Á íslenska sér
framtíð innan
upplýsingatækninnar?" haldið í
stofu 231b í Háskólanum í
Reykjavík við Ofanleiti. Að
málþinginu standa Tungutæknisetur og Íslensk
málnefnd, en
þingið er liður í fundaröð
Málnefndarinnar um mótun íslenskrar
málstefnu. Þingið hefst kl. 14:00 og
því lýkur kl. 17:00.
Það er öllum opið.
Dagskráin er hér.
Á
þinginu verður fjallað um
tungutækni og
hugbúnaðarþýðingar.
Gestur þingsins verður Trond
Trosterud,
dósent við Háskólann
í Tromsø í Noregi, en aðrir
frummælendur verða Eiríkur
Rögnvaldsson,
prófessor í íslenskri
málfræði og
stjórnarformaður Tungutækniseturs; Hjálmar
Gíslason,
forstöðumaður
vöruþróunar Símans
og höfundur leitarvélarinnar Emblu; Halldór
Jörgensson,
forstöðumaður Microsoft
á Íslandi;
og Bogi
Örn Emilsson,
framkvæmdastjóri
þýðingastofunnar Skjals.
Sigrún
Helgadóttir,
formaður Orðanefndar
Skýrslutæknifélags
Íslands setur
þingið en fundarstjóri er Hrafn
Loftsson,
lektor og stjórnarmaður í
Tungutæknisetri.
Myndir
frá málþinginu er að finna
hér.
|