3.3.2008
Fyrirlestur
um samíska,
færeyska og grænlenska tungutækni
Fjórði
fyrirlestur Tungutækniseturs á þessum
vetri verður haldinn í sal K5 í
Háskólanum í Reykjavík,
Kringlunni 1 (gamla Morgunblaðshúsinu)
föstudaginn 7. mars og hefst kl. 12:00. Fyrirlestari
er Trond
Trosterud
frá
Háskólanum í Tromsø
í Noregi, og nefnist fyrirlestur hans "Language technology
for Sámi, Faroese and Greenlandic: A presentation of ongoing
work in Tromsø".
Trond Trosterud er dósent (førsteamanuensis)
í samískri tungutækni við
Háskólann í Tromsø. Hann
hefur unnið mikið að uppbyggingu
tungutækni á fámennum
málsvæðum, og hefur ekki síst
beitt til þess endanlegum
stöðuvélaaðferðum
með góðum árangri. Hann hefur
m.a. unnið að stöðlun
samísks lyklaborðs, gerð
málgreiningarbúnaðar fyrir
samísku og færeysku, og gerð
leiðréttingarforrita fyrir samísku og
vestur-grænlensku. Í fyrirlestrinum mun hann kynna
starf sitt á þessu sviði og helstu
verkefni sem hann og samstarfsmenn hans vinna nú að.
|