 |
FRÉTT

|
23.11.2008
Fyrirlestur
um málfræðilega nýtingu
mörkunar 24. nóvember
Næsti
fyrirlestur Tungutækniseturs verður haldinn
í stofu 201 í Árnagarði
mánudaginn 24. nóvember kl. 12:00-13:00.
Fyrirlesari er Joel Wallenberg frá University of
Pennsylvania. Erindi hans nefnist The
Linguistic Utility of Tagging Icelandic
og verður flutt á ensku.
Aðferðir við
málfræðilega mörkun
íslensku hafa tekið stórt stökk
fram á við á síðustu
árum og hafa getið af sér
niðurstöður sem eru ekki einungis
áhugaverðar fyrir máltækni,
heldur einnig fyrir fræðileg
málvísindi. Í þessu erindi
verður haldið áfram á
sömu braut með tvennt að markmiði.
Í fyrsta lagi verður gerð grein fyrir
nýlegum tilraunum til að laga
góðan (state-of-the-art) enskan markara að
íslensku, og lýst ákveðnum
breytingum sem gerðar voru á markaranum til
að auðvelda honum að fást
við aðgreiningu
falla í íslensku.
Í seinni hluta erindisins fjallar höfundur um
ástæðurnar fyrir áhuga
sínum á mörkun, sem eru gerð og
nýting markaðra málheilda til
málfræðilegra rannsókna.
Lýst verður niðurstöðum
úr nýrri rannsókn höfundar
á magnliðarfærslu (Quantifier Movement)
í miðensku og eldri
nútímaensku. Til að unnt væri
að gera þessa rannsókn þurfti
tvennt; annars vegar markaðar málheildir og hins
vegar fyrri ítarlegar rannsóknir á
nútímaíslensku.
Joel Wallenberg er doktorsnemi við málvísindadeild University
of
Pennsylvania í
Philadelphia í
Bandaríkjunum. Hann stundar rannsóknir
á sögulegri setningafræði og
hefur nýtt og þróað
máltækni og
máltæknibúnað í
rannsóknum sínum. Hann hefur gert tilraunir
með málfræðilega mörkun
íslensku og verið í samstarfi við
íslenska málfræðinga. |
|
|